Ferill 346. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 945  —  346. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um útflutning hrossa, nr. 161/1994, sbr. lög nr. 73/1996.

(Eftir 2. umr., 2. mars.)

1. gr.

     2. og 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. laganna orðast svo: Gjaldið skal vera 6.800 kr. og greiðist í sérstakan útflutningssjóð í vörslu landbúnaðarráðuneytisins. Er því ætlað að standa undir kostnaði við skoðun á útflutningshrossum og útgáfu upprunavottorðs en 5% gjaldsins skal greiða í stofnverndarsjóð sem starfar skv. 15. gr. búnaðarlaga, nr. 70/1998.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Ákvæði til bráðabirgða.


    Þeim sem greitt hafa útflutningsgjald skv. 5. gr. frá gildistöku laga nr. 84/1997, um bún­aðargjald, þar til lög þessi öðlast gildi skal endurgreiddur sá hluti gjaldsins sem runnið hefur til Búnaðarmálasjóðs.