Ferill 98. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 1042  —  98. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um fyrirbyggjandi aðgerðir til að draga úr þunglyndi kvenna.

Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið á fundum sínum. Umsagnir bárust nefndinni frá Skrifstofu jafnréttismála, Stéttarfélagi íslenskra félagsráðgjafa og heilbrigðis- og tryggingamálaráðu­neyti.
    Í tillögunni er gert ráð fyrir að heilbrigðisráðherra verði falið að setja á fót nefnd sem hafi það hlutverk að kanna hvort og þá hvaða fyrirbyggjandi aðgerðir geti orðið til að draga úr þunglyndi meðal kvenna og að tillögum nefndarinnar verði síðan fylgt eftir með sérstöku átaki heilbrigðisyfirvalda.
    Nefndin leggur til að tillögunni verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
    Sólveig Pétursdóttir, Guðni Ágústsson og Ásta R. Jóhannesdóttir voru fjarverandi við af­greiðslu málsins.
    Ögmundur Jónasson áheyrnarfulltrúi í nefndinni er samþykkur áliti þessu.

Alþingi, 4. mars 1999.



Össur Skarphéðinsson,


form., frsm.


Lára Margrét Ragnarsdóttir.


Siv Friðleifsdóttir.



Guðmundur Hallvarðsson.


Bryndís Hlöðversdóttir.


Sigríður A. Þórðardóttir.