Ferill 547. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 1086  —  547. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á jarðalögum, nr. 65/1976, með síðari breytingum.

Frá landbúnaðarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið.
    Frumvarp þetta er lagt fram í þeim tilgangi að breyta ákvæðum jarðalaga, nr. 65/1976, um að héraðsnefndir tilnefni fulltrúa í jarðanefndir. Hefur héraðsnefndum farið fækkandi á undanförnum árum vegna sameiningar og fækkunar sveitarfélaga og er nú svo komið að á nokkrum landsvæðum starfa ekki héraðsnefndir lengur. Hefur því komið upp það vandamál að landbúnaðarráðherra hefur ekki verið unnt að skipa jarðanefnd þar sem tilnefningar hafa ekki legið fyrir frá héraðsnefnd. Vegna þessa þykir nauðsynlegt að breyta ákvæði 4. gr. jarðalaga, nr. 65/1976, um að héraðsnefndir tilnefni fulltrúa í jarðanefndir.
    Með frumvarpi þessu er lagt til að leyst verði úr þessu vandamáli með því að sýslumenn taki við því hlutverki af héraðsnefndum að tilnefna fulltrúa í jarðanefndir.
    Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins.

Alþingi, 9. mars 1999.



Guðni Ágústsson,


form., frsm.


Egill Jónsson.


Katrín Fjeldsted.



Guðjón Guðmundsson.


Ágúst Einarsson.


Hjálmar Jónsson.



Sigríður Jóhannesdóttir.


Lúðvík Bergvinsson.


Magnús Stefánsson.