Ferill 573. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Nr. 17/123
Þskj. 1159 — 573. mál.
Þingsályktun
um staðfestingu samninga um loðnustofninn á hafsvæðinu
milli Grænlands, Íslands og Jan Mayen.
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirtalda samninga um loðnustofninn á hafsvæðinu milli Grænlands, Íslands og Jan Mayen sem gerðir voru í Reykjavík 18. júní 1998:
1. Samning milli Íslands, Grænlands/Danmerkur og Noregs um loðnustofninn á hafsvæðinu milli Grænlands, Íslands og Jan Mayen.
2. Samning um gagnkvæmar veiðar í fiskveiðilögsögu Íslands og Grænlands.
3. Tvíhliða samkomulag milli Íslands og Noregs.
Samþykkt á Alþingi 10. mars 1999.