Ferill 605. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 1222  —  605. mál.




Svar



umhverfisráðherra við fyrirspurn Rannveigar Guðmundsdóttur um öryggis- og brunamál.

     1.      Er haft reglulegt eftirlit með slökkvibifreiðum út frá almennum og sérstökum öryggiskröfum sem gera þarf til slíkra tækja og hvernig er því eftirliti háttað?
    Slökkvibifreiðar eru skráningarskyld ökutæki skv. 63. gr. umferðarlaga, nr. 50/1987, með síðari breytingum. Dómsmálaráðherra setur reglur um skoðun skráningarskyldra ökutækja, þar á meðal um það hverjir annist skoðun þeirra, hve oft, hvar og hvenær almenn skoðun skuli fara fram og að öðru leyti um framkvæmd hennar, sbr. 67. gr. umferðarlaga. Þá setur dómsmálaráðherra reglur um gerð ökutækja og búnað þeirra og öryggis- og verndarbúnað fyrir ökumann og farþega, sbr. 1. mgr. 60. gr. sömu laga. Skoðunarstöðvar skoða slökkvibif­reiðar með tilliti til þessara reglna og er eftirlit með því að slökkvibifreiðar séu færðar til skoðunar í höndum löggæslumanna. Vinnueftirlit ríkisins skoðar búnað svonefndra körfu- og stigabifreiða á hverju ári skv. VII. kafla laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum. Þá skoða starfsmenn Brunamálastofnunar rík­isins reglulega dælubúnað slökkvibifreiða um leið og námskeið eru haldin fyrir slökkvilið sveitarfélaganna, sbr. 2. gr. laga nr. 41/1992, um brunavarnir og brunamál.

     2.      Hvaða gæðakröfur eru gerðar við kaup á slökkvibifreiðum, á nýjum bifreiðum annars vegar og notuðum hins vegar? Er miðað við almennar staðlaðar reglur um gæði í því sambandi?
    Slökkvibifreið er bifreið sem er búin slökkvidælu og eftir atvikum vatnsgeymi. Í bifreið­inni er rými fyrir slökkviliðsmenn og skápar til að geyma búnað til slökkvistarfa. Slökkvibif­reið skal fullnægja kröfum samkvæmt reglum um gerð og búnað ökutækja sem dómsmálaráð­herra setur á grundvelli 1. mgr. 60. gr. umferðarlaga, nr. 50/1987. Brunamálastofnun ríkisins hefur eftirlit með og samþykkir slökkvibúnað nýrra og notaðra slökkvibifreiða, þar á meðal slökkvidælur, sbr. c-lið 4. mgr. 2. gr. laga nr. 41/1992, um brunavarnir og brunamál. Rétt er að taka fram að á síðastliðnum mánuðum hefur verið unnið að samningu reglugerðar um slökkvilið og búnað þeirra. Notaðar slökkvibifreiðar hafa í 8 af 11 tilvikum verið keyptar frá Þýskalandi. Í þeim tilvikum hefur Brunamálastofnun ríkisins gengið eftir því að viðkom­andi bifreið hafi verið skoðuð af þýskum eftirlitsstofnunum, svo sem TÜV (Technische Überwachung Verein), BSÜ (Brandschutz Überwachung) og AÜ (Automobile Überwach­ung), og dælubúnaður prófaður af löggiltri skoðunarstöð. Að því búnu hefur Brunamála­stofnun samþykkt búnað umræddra slökkvibifreiða.

     3.      Hversu margar slökkvibifreiðar voru keyptar til landsins á árunum 1988–98 að báðum árum meðtöldum? Hversu margar þeirra voru keyptar nýjar og hversu margar voru notaðar? Hver var aldur notuðu bifreiðanna? Hvert var verð bifreiðanna? Þessar upplýsingar óskast sundurliðaðar eftir árum og eftir því hvort bifreiðarnar voru keypt­ar
                  a.      til Reykjavíkur,
                  b.      utan Reykjavíkur.

    Samkvæmt upplýsingum frá Brunamálastofnun ríkisins voru 25 slökkvibifreiðar, þar af 11 notaðar, keyptar hingað til lands á umræddu árabili. Ekki liggja fyrir nákvæmar upplýs­ingar um kaupverð þessara bifreiða, en sveitarfélög taka ákvarðanir um kaup á slökkvibif­reiðum. Á hinn bóginn liggur fyrir að í þeim tilvikum þar sem sveitarfélag hefur tekið ákvörðun um kaup á notaðri slökkvibifreið er ástæðuna fyrst og fremst að rekja til hagstæðs innkaupsverðs miðað við ástand og búnað bifreiðar. Þessar bifreiðar hafa að jafnaði verið eknar um 20–40 þúsund kílómetra en til samanburðar má geta þess að hér á landi er í notkun slökkvibifreið sem var gerð upp eftir að henni hafði verið ekið um 400 þúsund kílómetra.

Til Reykjavíkur Utan Reykjavíkur
Notuð Notuð Framleiðsluár notaðra bifreiða
1988 1
1989
1990 1 1
1991
1992 1
1993 3 2 1979, 1983
1994 1 1 1980
1995 2 1 1979
1996 2 1979, 1989
1997 1 1984
1998 1 3 4 1980, 1982, 1980, 1984
Samtals 2 0 12 11     

     4.      Hverjir voru seljendur bifreiðanna sem voru keyptar á þessum árum og hvaða ástæður réðu vali á seljendum?
    Samkvæmt upplýsingum Brunamálastofnunar ríkisins eru söluaðilar þeirra slökkvibif­reiða sem um ræðir Múlatindur hf., Kraftur hf., Eldvarnamiðstöðin hf. og Ístraktor hf. Ákvörðun um kaup á slökkvibifreiðum er alfarið í höndum sveitarfélaganna.

     5.      Hefur Brunamálastofnun eða starfsmenn hennar haft milligöngu við kaup sveitarfélaganna á slökkvibifreiðum og öðrum aðbúnaði? Ef svo er, hvernig hefur þeirri milli­göngu verið háttað?
    Í a-lið 4. mgr. 2. gr. laga nr. 41/1992, um brunavarnir og brunamál, með síðari breyting­um, segir að Brunamálastofnun ríkisins skuli leiðbeina sveitarstjórnum um allt það er lýtur að brunavörnum. Í samræmi við framangreinda skyldu hefur Brunamálastofnun, að beiðni einstakra sveitarfélaga, veitt upplýsingar um notagildi slökkvibúnaðar. Í þessu sambandi skal tekið fram að skv. c-lið 4. mgr. 2. gr. sömu laga skal Brunamálastofnun hafa eftirlit með og samþykkja slökkvibúnað. Smærri sveitarfélög hafa í nokkrum tilvikum ákveðið að festa kaup á notaðri slökkvibifreið sökum þess að tekjur sveitarfélagsins hafa að mati sveitar­stjórnar ekki leyft kaup á nýrri bifreið. Brunamálastofnun hefur því veitt upplýsingar um endingu og reynslu slökkviliða af einstökum bifreiðum þegar um það hefur verið beðið. Í ein­stökum tilvikum hefur starfsmaður stofnunarinnar, að beiðni viðkomandi sveitarfélags, farið utan og veitt upplýsingar um notagildi þeirra bifreiða sem í boði hafa verið m.a. á grundvelli upplýsinga frá samsvarandi stofnunum í nágrannalöndum. Aftur á móti hefur stofnunin ekki haft milligöngu um kaup á slökkvibifreiðum eða öðrum búnaði. Þó ber að geta þess að mörg sveitarfélög nota enn slökkvibifreiðar af gerðinni Bedford sem voru keyptar hingað til lands fyrir u.þ.b. þremur áratugum. Umræddar bifreiðar hafa reynst vel hér á landi. Tími þeirra er hins vegar að renna á enda en þær þykja vera gamaldags og stirðar í notkun. Brunamála­stofnun hefur reynt að sjá til þess að varahlutir væru til í landinu vegna þess að með tímanum hefur reynst æ erfiðara að útvega þá. Verða þeir Bedford-bílar sem slökkviliðin hætta að nota þá nýttir í varahluti.

     6.      Telur ráðherra að milliganga Brunamálastofnunar eða starfsmanna hennar samræmist hlutverki stofnunarinnar sem eftirlitsaðila og ráðgjafa sveitarfélaganna?
    Samkvæmt upplýsingum Brunamálstofnunar ríkisins hefur stofnunin leiðbeint sveitar­stjórnum um brunavarnir en ekki mælt með sérstökum tækjum, enda samræmist það ekki hlutverki stofnunarinnar.

     7.      Telur ráðherra að hagkvæmni fyrir viðkomandi fyrirtæki hafi ávallt ráðið vali á seljanda slökkvibifreiða?
    Sveitarfélög taka sem fyrr segir ákvörðun um kaup á slökkvibifreiðum með hliðsjón af þörfum og því fé sem til þess á að verja. Ráðuneytinu er ekki kunnugt um annað en að sveit­arfélög hafi tekið ákvarðanir um kaup á slökkvibifreið á grundvelli faglegra sjónarmiða sem í mörgum tilvikum hafa byggst á ráðgjöf Brunamálastofnunar ríkisins.

     8.      Telur ráðherra að ráðgjöf opinberrar stofnunar um einn seljanda slökkvibifreiða til sveitarfélaganna samræmist samkeppnislögum?
    Samkvæmt upplýsingum Brunamálastofnunar ríkisins hefur stofnunin í samræmi við c-lið 4. mgr. 2. gr. laga nr. 41/1992, um brunavarnir og brunamál, eingöngu veitt sveitarfélögum upplýsingar um tæknileg málefni varðandi gerð og búnað slökkvibifreiða, enda samrýmdist annað ekki hlutverki stofnunarinnar.

     9.      Til hvaða ráðstafana hefur verið gripið til að uppræta samskiptaörðugleika milli Eldvarnaeftirlits Reykjavíkur og Brunamálastofnunar sem fram hafa komið í fjölmiðlum?
    Ráðuneytið hefur þegar haldið fund með Reykjavíkurborg sem er ábyrg fyrir eldvarna­eftirliti í Reykjavík lögum samkvæmt, fulltrúum eldvarnaeftirlits Reykjavíkur og brunamála­stjóra um samskipti þessara aðila og mun ásamt Reykjavíkurborg kappkosta að bæta þau að svo miklu leyti sem þau eru ekki eðlileg, sem þau eru í langflestum tilvikum.