Ferill 6. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


124. löggjafarþing 1999.
Þskj. 6  —  6. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um niðurstöður launakönnunar kjararannsóknarnefndar.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



     1.      Hver eru viðbrögð ráðherra við niðurstöðum launakönnunar kjararannsóknarnefndar á fjórða ársfjórðungi 1998 sem sýna mikinn launamun milli kynja og landsvæða?
     2.      Hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar af hálfu nýrrar ríkisstjórnar til að sporna gegn kynbundnu launamisrétti og launamun milli landsvæða?