Greiðsla kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi

Fimmtudaginn 18. nóvember 1999, kl. 19:15:32 (1986)

1999-11-18 19:15:32# 125. lþ. 29.10 fundur 200. mál: #A greiðsla kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi# frv. 99/1999, viðskrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 29. fundur, 125. lþ.

[19:15]

Viðskiptaráðherra (Finnur Ingólfsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég tel að þetta séu hárréttar ábendingar og rétt sé að málið verði skoðað sérstaklega. Ég skal láta skoða þessar ábendingar og spurningar hv. þm. áður en málið verður tekið til formlegrar umfjöllunar í nefndinni. Ég mun reyna að hafa svör við þeim þegar þeir menn sem hafa unnið að undirbúningi málsins verða kallaðir fyrir í nefndastarfinu.