Viðskiptaráðherra (Finnur Ingólfsson) (andsvar):
Herra forseti. Út af fyrirspurn hv. þm. í lokin þá verð ég kannski að svara svipað og hv. þm. spurði, sá spyr sem ekki veit: Ja, sá svarar sem ekki veit. Ég veit ekki til þess að til sé nokkur sem ekki er heppilegur til að taka þátt í einkavæðingu eins og þessari. Ég a.m.k. vona að svo sé ekki.