Ferill 53. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 53  —  53. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um gerð vega og vegslóða í óbyggðum.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



     1.      Hvernig hefur lögum nr. 63/1993, um mat á umhverfisáhrifum, verið framfylgt hvað varðar lagningu vega og vegslóða í óbyggðum sem ekki hefur verið gert ráð fyrir í vegáætlun?
     2.      Hvernig hefur þessu verið háttað með vegi sem lagðir hafa verið vegna rannsókna á virkjanasvæðum norðan Vatnajökuls eftir 1. maí 1994?