Ferill 54. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 54 — 54. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um breytingu á verkaskiptingu innan Stjórnarráðsins.
Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.
Hvaða ástæður liggja til þess að mál er varða alþjóðasamskipti og samvinnu á sviði umhverfismála hafa verið tekin frá umhverfisráðuneytinu og færð til utanríkisráðuneytis með 2. gr. auglýsingar nr. 73 28. maí 1999?