Ferill 96. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 97 — 96. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um ár aldraðra.
Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.
Hvað hefur verið gert á vegum ráðuneytisins sérstaklega í málefnum eldri borgara á ári aldraðra? Hefur verið haft samráð við samráðsnefnd aldraðra? Ef svo er, hvenær og af hvaða tilefni?
Skriflegt svar óskast.