Ferill 105. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 111  —  105. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um forgang kostaðra dagskrárliða Ríkisútvarpsins.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



    Er ráðherra kunnugt um að 14. október sl. var fastur dagskrárliður keyptur út úr dagskrá Rásar 2? Hvert er álit ráðherra á því að kostaðir liðir hafi forgang umfram fasta liði í dagskrá Ríkisútvarpsins?