Ferill 138. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 159 — 138. mál.
Fyrirspurn
til menntamálaráðherra um útskrift nemenda úr framhaldsskólum.
Frá Svanfríði Jónasdóttur.
1. Hversu margir nemendur fæddir árin 1975–78 hófu nám í framhaldsskólum landsins strax að loknu grunnskólanámi:
a. miðað við búsetu eftir kjördæmum landsins,
b. eftir kynjum?
2. Hversu margir þessara nemenda útskrifuðust úr framhaldsskólunum á árunum 1995–98:
a. miðað við búsetu eftir kjördæmum landsins,
b. eftir kynjum?
Óskað er eftir tölum um fjölda og hlutfall.
Skriflegt svar óskast.