Ferill 166. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 192 — 166. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um framsal Háskóla Íslands á einkaleyfi til peningahappdrættis.
Frá Ögmundi Jónassyni.
Hvaða eftirlit er haft með því þegar Háskóli Íslands framselur til einkafyrirtækja einkaleyfi sitt til að reka peningahappdrætti?