Ferill 178. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 205 — 178. mál.
Fyrirspurn
til iðnaðarráðherra um smíði skipa.
Frá Jóhanni Ársælssyni.
1. Hve mörg skip lengri en 15 m eru nú í smíðum fyrir Íslendinga
a. innan lands,
b. erlendis?
Fram komi í hvaða löndum þau eru smíðuð.
2. Hve mörg ný skip lengri en 15 m voru smíðuð fyrir Íslendinga á árunum 1995–98
a. innan lands,
b. erlendis?
Fram komi í hvaða löndum þau voru smíðuð.
3. Hefur eða hafði Siglingastofnun Íslands eftirlit með smíði skipa sem spurt er um í 1. og 2. lið, og þá hve mörgum? Fram komi skipting eftir löndum varðandi þau skip sem smíðuð voru erlendis.