Ferill 23. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 224 — 23. mál.
Frumvarp til laga
um öryggi greiðslufyrirmæla í greiðslukerfum.
(Eftir 2. umr., 12. nóv.)
I. KAFLI
Gildissvið og skilgreiningar.
1. gr.
2. gr.
1. Greiðslukerfi: Formlegt fyrirkomulag þriggja eða fleiri þátttakenda sem byggist á sameiginlegum reglum og stöðluðu fyrirkomulagi við framkvæmd greiðslufyrirmæla milli þeirra, enda hafi a.m.k. einn þátttakendanna aðalskrifstofu sína hér á landi, og greiðslukerfið fullnægir þeim kröfum sem gerðar eru og það hefur verið tilkynnt til eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) og framkvæmdastjórnar EB, sbr. 3. gr.
2. Stofnun:
a. Viðskiptabanki eða sparisjóður sem hlotið hefur starfsleyfi samkvæmt lögum nr. 113/1996, um viðskiptabanka og sparisjóði.
b. Fyrirtæki sem hlotið hefur starfsleyfi samkvæmt lögum nr. 123/1993, um lánastofnanir aðrar en viðskiptabanka og sparisjóði.
c. Fyrirtæki í verðbréfaþjónustu samkvæmt lögum nr. 13/1996, um verðbréfaviðskipti.
d. Deild eða deildir í stofnun, sbr. a–c-lið hér að framan, sem ekki teljast sérstakar persónur að lögum en tilheyra eftirlitsskyldri erlendri stofnun sem hefur starfsleyfi og útibú hér á landi.
e. Seðlabanki Íslands eða stofnun með ríkisábyrgð sem heimild hefur til að stunda að hluta eða öllu leyti starfsemi sem fellur undir a–c-lið.
3. Milligönguaðili: Aðili sem hefur milligöngu fyrir stofnun í greiðslukerfi og hefur einkarétt á miðlun greiðslufyrirmæla viðkomandi stofnunar.
4. Uppgjörsaðili: Aðili sem stofnar og sér um uppgjörsreikninga fyrir stofnanir og milligönguaðila og sér um framkvæmd á greiðslufyrirmælum þeirra og veitir þeim eftir atvikum lán í þessu skyni.
5. Greiðslujöfnun: Að umbreyta í eina kröfu eða skuldbindingu mörgum kröfum eða skuldbindingum sem eiga rót að rekja til greiðslufyrirmæla sem þátttakendur hafa annaðhvort gefið eða eiga að taka við frá einum eða fleiri þátttakendum svo að aðeins ein (nettó) krafa eða skuldbinding myndast um greiðslu eða greiðsluskyldu þátttakanda.
6. Uppgjörsreikningur: Reikningur í seðlabanka, hjá milligöngu- eða uppgjörsaðila sem er notaður til að varðveita innstæður og verðbréf til uppgjörs á greiðslum milli þátttakenda í greiðslukerfi.
7. Greiðslufyrirmæli: Sérhver fyrirmæli þátttakanda um að móttakanda sem þar er vísað til séu afhentir fjármunir með því að leggja með reikningsfærslu tiltekna fjárhæð inn á reikning stofnunar, seðlabanka eða uppgjörsaðila, eða sérhver fyrirmæli sem skuldbinda hann eða leysa hann undan skyldu til að inna af hendi greiðslu eins og hún er nánar skilgreind í reglum greiðslukerfisins, eða fyrirmæli þátttakanda um að framselja bein eða óbein eignarréttindi í verðbréfum með rafrænni eignarskráningu, eða önnur sambærileg fyrirmæli.
8. Greiðslujöfnunarstöð: Aðili sem vinnur úr greiðslufyrirmælum sem berast frá stofnunum og annast greiðslujöfnun þeirra á milli, einnig milligöngu- og uppgjörsaðili, ef það á við.
9. Þátttakandi: Stofnun, milligönguaðili, greiðslujöfnunarstöð eða uppgjörsaðili.
10. Óbeinn þátttakandi: Lánastofnun sem fellur undir a- eða b-lið 2. tölul. um skilgreiningu á stofnun og sem gert hefur samning við stofnun sem á aðild að greiðslukerfi og sem gerir lánastofnuninni fært að senda greiðslufyrirmæli í gegnum greiðslukerfið.
11. Veðtryggingar: Allar seljanlegar eignir, þ.m.t. peningainnstæður, verðbréf og samningar um endurhverf viðskipti eða aðrir sambærilegir samningar sem gerðir eru eða lagðir fram til tryggingar í greiðslukerfi eða í seðlabönkum.
12. Seðlabanki: Seðlabanki í aðildarríki á Evrópska efnahagssvæðinu eða Seðlabanki Evrópu.
3. gr.
Ráðherra skal með auglýsingu sem birt er í Lögbirtingablaðinu kunngera þau innlendu greiðslukerfi sem viðurkennd hafa verið og falla undir ákvæði þessara laga og senda tilkynningu þar um til eftirlitsstofnunar EFTA (ESA).
Aðilum sem starfrækja greiðslukerfi samkvæmt þessari grein er skylt að veita Seðlabanka Íslands upplýsingar um beina og óbeina þátttakendur sem aðild eiga að kerfinu, svo og breytingar á þeim.
II. KAFLI
Greiðslujöfnun og greiðslufyrirmæli.
4. gr.
Sama gildir að því er varðar greiðslufyrirmæli sem koma til greiðslukerfisins á sama degi og gjaldþrotaskipti á búi þátttakanda hefjast en eftir þá stund sem tilgreind er í 6. gr., enda hafi greiðslujöfnunarstöð, milligöngu- eða uppgjörsaðili sýnt fram á að hann hafi hvorki vitað né mátt vita um þau.
Í greiðslukerfum er skylt að skilgreina hvenær greiðslufyrirmæli teljast vera komin til kerfisins og er afturköllun þeirra óheimil eftir tímamark það sem tiltekið er í reglum kerfisins.
5. gr.
III. KAFLI
Ákvæði er varða gjaldþrotaskipti.
6. gr.
7. gr.
IV. KAFLI
Vernd veðréttinda gegn gjaldþrotaskiptum á búi veðþola.
8. gr.
9. gr.
V. KAFLI
Upplýsingagjöf vegna þátttöku í greiðslukerfi o.fl.
10. gr.
11. gr.
Ráðherra getur með reglugerð kveðið nánar á um framkvæmd laga þessara.12. gr.
VI. KAFLI Gildistaka o.fl.
13. gr.
14. gr.