Ferill 201. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 234 — 201. mál.
Fyrirspurn
til samgönguráðherra um þolmörk ferðamannastaða á hálendinu.
Frá Pétri H. Blöndal.
1. Hver er áætlaður árlegur fjöldi erlendra og innlendra ferðamanna inn á hálendið,
a. núna,
b. eftir 10 ár,
c. eftir 25 ár?
2. Þola náttúruperlur landsins meiri umferð gangandi, ríðandi, akandi og fljúgandi ferðamanna en nú?