Ferill 279. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 398  —  279. mál.




Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um afkomu Landsbanka Íslands 1988–97.

Frá Guðjóni A. Kristjánssyni.



     1.      Hversu miklar voru afskriftir Landsbanka Íslands á árunum 1988–97, að báðum árum meðtöldum?
     2.      Hver var heildarafkoma bankans á þeim árum?
     3.      Hvenær var stofnað til lánveitinga sem leiddu til þess taps sem olli afskriftunum 1988– 97, að báðum árum meðtöldum?
     4.      Hvert var heildartap bankans af rekstri Lindar hf.?
     5.      Hvaða fimm einstakar lánveitingar Lindar hf. leiddu til mesta taps bankans?


Skriflegt svar óskast.