Ferill 270. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 504 —  270. mál.




Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 83/1989, um Þjóðarbókhlöðu og endurbætur menningarbygginga, með síðari breytingum.

(Eftir 2. umr., 18. des.)



1. gr.

    Við ákvæði til bráðabirgða í lögunum bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Þrátt fyrir ákvæði 1. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga þessara, sbr. 3.–6. gr., skulu tekjur af sérstökum eignarskatti umfram 490 m.kr. renna í ríkissjóð á árinu 2000.

2. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2000.