Ferill 309. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 558  —  309. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um nýsköpun í gagna- og fjarvinnslu á landsbyggðinni.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



     1.      Hvernig hefur verið unnið að því af hálfu ríkisstjórnarinnar að fylgja eftir skýrslu Iðntæknistofnunar um nýsköpun í gagna- og fjarvinnslu á landsbyggðinni frá því í september sl.?
     2.      Hefur verið tekin ákvörðun um flutning einstakra verkefna og ef svo er, hver eru þau og hvert verða þau flutt?