Ferill 310. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 559 — 310. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um tóbaksvarnir.
Frá Guðmundi Hallvarðssyni.
1. Hverjar voru tekjur tóbaksvarnanefndar, sbr. 15. gr. laga um tóbaksvarnir, nr. 74/1984, með síðari breytingum, á árunum 1997 og 1998?
2. Hvernig hefur þessum tekjum verið varið?
3. Hvernig hefur verið staðið að fræðslustarfsemi, sbr. 14. gr. fyrrnefndra laga?
Skriflegt svar óskast.