Ferill 316. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 566 — 316. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um upplýsingamiðlun EFTA til væntanlegra ESB-landa.
Frá Össuri Skarphéðinssyni.
1. Hvernig hefur EFTA reynt að kynna væntanlegum aðildarlöndum Evrópusambandsins EES-samninginn?
2. Er fyrirhugað að gera átak af hálfu EFTA til að efla þekkingu þeirra á samningnum?
3. Mun utanríkisráðuneytið reyna sérstaklega að auka þekkingu og skilning viðkomandi landa á mikilvægi EES-samningsins fyrir Ísland? Ef svo er, hvernig?