Ferill 332. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 584  —  332. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um skattlagningu slysabóta.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



     1.      Hversu margir voru krafðir um skatt af slysaörokugreiðslum vegna tímabundinnar örorku allt að sex ár aftur í tímann á undanförnum tveimur árum?
     2.      Hversu margir fengu skattinn felldan niður?
     3.      Hversu margir tjónþolar hafa þegar greitt skattinn og hve háar upphæðir er um að ræða?
     4.      Hefur einhverjum verið endurgreiddur skatturinn?
     5.      Hvaða rök eru fyrir því að ekki sitji allir við sama borð gagnvart þessari skattlagningu?