Ferill 343. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 596 — 343. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegsráðherra um eldi þorsks og annarra sjávardýra.
Frá Kristjáni Pálssyni.
1. Hver er stefna stjórnvalda varðandi eldi þorsks og annarra sjávardýra?
2. Hafa stjórnvöld gert áætlanir um rannsóknir á eldi einstakra tegunda í fjörðum við strendur Íslands?
3. Hver hefur verið árangur af eldi sjávardýra, þ.m.t. þorsks, hér á landi fram að þessu?