Ferill 362. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 617  —  362. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um aðbúnað þroskaheftra á Landspítala.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



     1.      Hvenær er fyrirhugað að ráða bót á aðbúnaði þeirra þroskaheftu einstaklinga á endurhæfingar- og hæfingardeild Landspítala sem áður dvöldust á Kópavogshæli?
     2.      Er ekki tímabært að mati ráðherra að þetta fólk fái þjónustu samkvæmt lögum um málefni fatlaðra?