Ferill 364. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 619  —  364. mál.




Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um áhættulán.

Frá Svanfríði Jónasdóttur og Rannveigu Guðmundsdóttur.



       1.      Hvaða sjóðir og lánastofnanir veita áhættulán fyrirtækjum eða þeim sem hyggja á stofnun fyrirtækis?
       2.      Hver er skilgreining lánveitendanna á áhættuláni?
       3.      Með hvaða skilmálum eru slík lán veitt?
       4.      Hversu margar lánveitingar hafa verið hjá hverjum sjóði eða stofnun fyrir sig á sl. fimm árum og um hve háar upphæðir hefur verið að ræða?


Skriflegt svar óskast.