Ferill 384. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 642 — 384. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um rekstur meðferðarheimilis að Gunnarsholti.
Frá Margréti Frímannsdóttur.
1. Eru fyrirhugaðar breytingar á rekstri meðferðarheimilisins að Gunnarsholti? Ef svo er, hverjar eru þær?
2. Telur ráðherra að til greina komi að gera meðferðarheimilið að Gunnarsholti að sjálfstæðri stofnun sem falli undir rekstur heilsugæslunnar í Rangárvallasýslu?
3. Er ráðherra tilbúinn til að beita sér fyrir viðræðum hlutaðeigandi aðila sem miði að slíkum breytingum og tryggi rekstrargrundvöll heimilisins?