Ferill 432. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 702 — 432. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um skráningu afbrota.
Frá Margréti Frímannsdóttur.
Er framkvæmd samræmd og heildstæð afbrotafræðileg skráning á öllum afbrotum og tengdum atriðum? Ef svo er, hvenær hófst slík skráning? Ef ekki, er ráðherra tilbúinn til þess að beita sér fyrir því að hún verði hafin nú þegar?