Ferill 434. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 704  —  434. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um eftirlit á skilorðstíma.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



     1.      Hafa reglur um fyrirkomulag eftirlits með börnum sem hlotið hafa skilorðsdóm verið endurskoðaðar í samræmi við niðurstöður í skýrslu nefndar dómsmálaráðherra um málefni ungra afbrotamanna frá 4. maí 1999?
     2.      Ef svo er, hefur reglunum verið breytt og í hverju eru þær breytingar fólgnar? Ef ekki, mun ráðherra beita sér fyrir því að reglurnar verði endurskoðaðar?