Ferill 444. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 715 — 444. mál.
Fyrirspurn
til landbúnaðarráðherra um aðild að verkefninu Maður – nýting – náttúra.
Frá Jóni Bjarnasyni.
1. Hvernig er háttað þátttöku eða aðild ráðherra, ráðuneytisins og stofnana þess að verkefninu Maður – nýting – náttúra. Rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma?
2. Hve stór hluti þess fjár sem varið er til verkefnisins fer til stofnana og annarra aðila á vegum ráðuneytisins og þá hverra?