Ferill 448. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 719 — 448. mál.
Fyrirspurn
til iðnaðarráðherra um niðurgreiðslu á rafhitun.
Frá Kristjáni L. Möller.
Hvaða notendur raf- og hitaveitna hafa notið niðurgreiðslna af fjárlagaliðnum 11-399-1.15 (Niðurgreiðsla á rafhitun) undanfarin 10 ár og um hvaða upphæðir er að ræða í hverju tilviki, sundurliðað eftir veitum og fjölda notenda hverrar veitu, skipt eftir árum?
Skriflegt svar óskast.