Ferill 476. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 756  —  476. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um meðferð á psoriasis.

Frá Ögmundi Jónassyni.



     1.      Hvað hyggst ráðherra gera til að bæta stöðu psoriasissjúklinga í ljósi þess að stórlega hefur dregið úr heimildum fyrir þá til að gangast undir loftslagsmeðferð erlendis?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að þeim skilyrðum sem siglinganefnd hefur sett fyrir loftslagsmeðferð psoriasissjúklinga verði breytt?
     3.      Er eðlilegt að gerð sé krafa um að psoriasissjúklingar noti lyf sem valdið geta alvarlegum aukaverkunum áður en reynd er náttúruleg meðferð eins og loftslagsmeðferð?