Ferill 478. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 758  —  478. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um Geysissvæðið í Biskupstungum.

Frá Ísólfi Gylfa Pálmasyni.



     1.      Hver er stefna ráðherra varðandi kaup á Geysissvæðinu í Biskupstungum, en heimild til kaupa á svæðinu hefur verið í fjárlögum um margra ára skeið?
     2.      Hvaða hugmyndir hefur ráðherra um nýtingu Geysissvæðisins í framtíðinni?