Ferill 497. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 781 — 497. mál.
Fyrirspurn
til félagsmálaráðherra um móttöku flóttamanna.
Frá Þórunni Sveinbjarnardóttur.
Hefur verið tekin endanleg ákvörðun um hvaða sveitarfélag tekur á móti hópi flóttamanna frá Júgóslavíu í sumar? Ef svo er, hvaða sveitarfélag hefur orðið fyrir valinu og hvaða ástæður liggja þar að baki?