Ferill 515. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 814 — 515. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um framtíð sjúkraflugs.
Frá Kristjáni L. Möller.
1. Hvað líður undirbúnings- og útboðsvinnu fyrir sjúkraflug, sbr. tillögur í skýrslu Verk- og kerfisfræðistofunnar hf. frá vordögum 1999?
2. Er ráðuneytið tilbúið að standa að heildarútboði sjúkraflugs með öðru flugi sem fyrirsjáanlegt er að bjóða þarf út á næstu missirum?