Ferill 610. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 945 — 610. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um bað- og snyrtiaðstöðu á hjúkrunarheimilum.
Frá Gunnari Birgissyni.
1. Hverjar eru reglur heilbrigðisráðuneytisins um bað- og snyrtiaðstöðu fyrir vistrými á hjúkrunarheimilum, þ.e. um:
a. stærð,
b. frágang?
2. Er leyfilegt að hafa sameiginlega bað- og snyrtiaðstöðu fyrir tvö eða fleiri aðliggjandi hjúkrunarrými?
Skriflegt svar óskast.