Ferill 617. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1015 — 617. mál.
Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um skattalega stöðu einstaklingsreksturs.
Frá Einari K. Guðfinnssyni.
Er ætlun ráðherra að beita sér fyrir breytingu á lögum um tekjuskatt og eignarskatt þannig að einstaklingar með atvinnurekstur á eigin kennitölu geti fært reksturinn yfir á kennitölu lögaðila og miðað yfirfærslu eignanna við skattalegt bókfært verð atvinnurekstrar síns?