Ferill 501. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1097 — 501. mál.
Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 2/1990, um Íslenska málnefnd, með síðari breytingum.
(Eftir 2. umr., 28. apríl.)
1. gr.
1. gr. laganna orðast svo:Íslensk málnefnd er málræktar- og málverndarstofnun og rekur Íslenska málstöð.
2. gr.
Menntamálaráðherra skipar forstöðumann Íslenskrar málstöðvar til fimm ára í senn. Forstöðumaður skal hafa lokið meistaraprófi eða jafngildu prófi í íslenskri málfræði. Leita skal álits Íslenskrar málnefndar um umsækjendur um stöðu forstöðumanns áður en skipað er í stöðuna.
Forstöðumaður ræður annað starfsfólk. Hann stjórnar daglegum rekstri málstöðvarinnar og gefur ráðherra árlega skýrslu um starfsemi stöðvarinnar.
3. gr.