Ferill 325. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1110 — 325. mál.
Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á höfundalögum, nr. 73/1972, með síðari breytingum.
Frá menntamálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Þórunni J. Hafstein og Val Árnason frá menntamálaráðuneyti, Lúðvík Geirsson og Hjálmar Jónsson frá Blaðamannafélagi Ís
Umsagnir bárust nefndinni frá Ríkisútvarpinu, Verslunarráði Íslands, Hagþenki – félagi höfunda fræðirita og kennslugagna, Blaðamannafélagi Íslands, Námsgagnastofnun, Fjöl
Helsta markmið þeirra breytinga á höfundalögum sem lagðar eru til í frumvarpi þessu er að laga íslenska höfundalöggjöf að tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 96/9 um lögverndun gagnagrunna. Þá er með frumvarpinu gerð tillaga um að samræma íslensk höfundalög að til
Gagnagrunnur er skilgreindur í tilskipun Evrópusambandsins sem safn sjálfstæðra verka, upplýsinga eða efnisatriða sem komið er fyrir með skipulegum eða kerfisbundnum hætti og eru aðgengileg með rafrænum aðferðum eða á annan hátt. Lögvernd gagnagrunna samkvæmt frumvarpi þessu er tvíþætt. Annars vegar lýtur hún að vernd höfunda gagnagrunnsins að full
Rétt er að taka fram að gagnagrunnur kann að geyma höfundaréttarlega varið efni sem að sjálfsögðu er verndað samkvæmt almennum rétti höfundaréttar.
Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins með breytingum sem lagðar eru til í sérstöku þingskjali. Þær eru eftirfarandi:
1. Lögð er til lagfæring orðalags í 1. málsl. 2. efnismgr. 1. gr.
2. Lagðar eru til breytingar á 2. gr. Ör tækniþróun og framfarir í dreifingu á hugverkum geta haft í för með sér mikla röskun á réttindum höfunda, listflytjenda og framleiðenda. Er hér einkum átt við eintakagerð til einkanota. Í athugasemdum við lagafrumvarp um breytingu á höfundalögum, sem lagt var fram á 106. löggjafarþingi 1983–84, kom fram að vegna eintakagerðar til einkanota væri eðlilegt og reyndar sjálfsagt að rétthafar fengju bætt það tjón sem leiðir af þverrandi sölu hljóðrita af þeim sökum og auk þess greiðslur fyrir þau auknu afnot hugverka sem ný tækni hlýtur óhjákvæmilega að hafa í för með sér. Til þess að koma til móts við þessi sjónarmið var 11. gr. höfundalaga breytt með lögum nr. 78/1984, og lögfest gjald á auð bönd og/eða upptökutæki. Núna er komin til sögunnar stafræn eintakagerð til einkanota. Slíkar upptökur eru orðnar mjög góðar og segja má að eintak sem fjölfaldað hefur verið stafrænt sé mjög svipað að gæðum og frumeintakið. Af þessum sökum er nú lögð fram tillaga um breytingu á 11. gr. höfunda
3. Lögð er til breyting á 3. gr. til frekari skýringar á því hverjum sé heimil gerð eintaka eftir tölvuforriti. Réttur notanda er ætíð afleiddur af rétti eiganda eintaks af tölvuforriti.
4. Lagt er til að 2. málsl. efnismálsgreinar b-liðar 4. gr. falli brott þar sem málsliðurinn hefur lítið notagildi og hefur jafnframt sætt gagnrýni.
5. Lagðar eru til breytingar á 5. gr. þar sem m.a. er lagt til að Höfundaréttarsjóður myndlistarmanna eða annar sjóður sem kæmi í hans stað reikni sér hæfilegt endurgjald fyrir innheimtu gjalds við endursölu á listaverkum í atvinnuskyni. Í því sambandi leggur nefndin áherslu á að ekki verði heimilt að áskilja hærra endurgjald en sem nemur kostn
Þá er lagt til að við bætist ný málsgrein, er verði 4. mgr., þar sem lögð er til breyting á því fyrirkomulagi sem gilt hefur um innheimtu svonefnds fylgiréttargjalds sem leggst á söluverð við endusölu listaverka í atvinnuskyni og sölu listaverka á listmunauppboð
6. Lögð er til breyting á 11. gr. í samræmi við 5. gr. Vanræksla aðila sem fæst við endursölu listaverka í atvinnuskyni á að senda samtökum rétthafa skilagrein um seld listaverk mun varða sektum eða fangelsi allt að tveimur árum. Ákvæði þetta þykir nauðsynlegt til að tryggja að ávallt liggi fyrir réttar upplýsingar um skil seljanda á fylgiréttargjaldi til samtaka myndlistarmanna.
7. Lögð er til breyting á 15. gr., um verndartíma gagnagrunna, til að eyða því tómarúmi sem myndast hefði frá 1. janúar 2000 til gildistöku laganna og til að tryggja að ekki sé skertur verndartími þeirra gagnagrunna sem gerðir hafa verið frá 1. janúar 1983 til gildistöku laganna þannig að sú vernd haldist til 1. janúar 2016.
8. Að lokum er lagt til að við lögin bætist ákvæði til bráðabirgða þar sem nánar er mælt fyrir um niðurlagningu Mynlistarsjóðs Íslands, sbr. athugasemdir við 5. tölulið hér að framan. Þannig er lagt til að menntamálaráðherra skipi skilanefnd sem í eiga sæti þrír menn. Einn nefndarmaður skal skipaður eftir tilnefningu samtaka myndlistarmanna en tveir án tilnefningar og skal annar þeirra vera formaður nefndarinnar. Nefndin skal hafa lokið störfum innan sex mánaða frá gildistöku laganna.
Alþingi, 11. apríl 2000.
Sigríður A. Þórðardóttir,
form., frsm.
Tómas Ingi Olrich.
Þorgerður K. Gunnarsdóttir.
Svanfríður Jónasdóttir.
Sigríður Jóhannesdóttir.
Kolbrún Halldórsdóttir.
Kristinn H. Gunnarsson.
Vigdís Hauksdóttir.
Árni Johnsen.