Ferill 631. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1129 — 631. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um reglur um öryggisbúnað í sérútbúnum bifreiðum fatlaðra og bifreiðum til flutnings fatlaðra.
Frá Steingrími J. Sigfússyni.
Er þess að vænta að dómsmálaráðuneytið setji sérstakar reglur um öryggisbúnað í sérútbúnum bifreiðum fatlaðra og bifreiðum til flutnings fatlaðra, svo sem um festingar hjólastóla, öryggisbelti fyrir fólk í hjólastólum og annað sem tryggt getur öryggi fatlaðra í umferðinni?