Ferill 632. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1130  —  632. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um fyrirvara Íslands við Atlantshafssamninginn.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



    Ber að líta svo á að fyrirvari Íslands við Atlantshafssamninginn frá 1949, þess efnis að Íslendingar gætu ekki sem vopnlaus þjóð sagt annarri þjóð stríð á hendur, sé úr gildi fallinn í ljósi aðildar Íslands að hernaði Atlantshafsbandalagsins gegn Júgóslavíu árið 1999?