Ferill 640. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1273 — 640. mál.
Fyrirspurn
til landbúnaðarráðherra um óhöpp og slys vegna búfjár á þjóðvegum landsins.
Frá Steingrími J. Sigfússyni.
1. Hefur ráðherra í hyggju að grípa til aðgerða í ljósi þess að óhöppum og slysum vegna búfjár á þjóðvegum landsins virðist fara fjölgandi?
2. Hver er afstaða ráðherra til þess að koma á almennri vörsluskyldu stórgripa og banna lausagöngu þeirra við þjóðvegi?