Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):
Borist hefur svohljóðandi bréf:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum leyfi ég mér, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að óska þess að 2. varaþingmaður Sjálfstfl. í Norðurl. v., Adolf H. Berndsen framkvæmdastjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni og forföllum 1. varaþingmanns.
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Vilhjálmur Egilsson, 4. þm. Norðurl. v.``
Enn fremur liggur frammi svohljóðandi bréf:
,,Af sérstökum ástæðum get ég ekki tekið sæti sem varamaður á Alþingi á tímabilinu 27. febrúar til 5. mars árið 2001.
Sigríður Ingvarsdóttir,
1. varaþm. Sjálfstfl. í Norðurl. v.``
Kjörbréf Adolfs H. Berndsens hefur verið rannsakað og samþykkt en hann hefur ekki tekið sæti á Alþingi áður og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.