Guðjón A. Kristjánsson:
Herra forseti. Við lestur frv. um sölu ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf. rak ég augun í setningu á miðri bls. 3 í frv. Hún hljóðar svo, með leyfi forseta:
,,Hér á landi er jafn aðgangur landsmanna að fjarskiptaþjónustu tryggður með ákvæðum fjarskiptalaga og nú einnig með ákvæði til bráðabirgða í frv. þessu ...``
Við skoðun á frv. gat ég hvergi séð neitt ákvæði til bráðabirgða í frv. Kannski er það misskilningur minn en ég hef ekki komið auga á það. Ég vildi gera athugasemd við málið eins og það liggur fyrir.