Frsm. samgn. (Árni Johnsen) (andsvar):
Herra forseti. Hér er ekki um neinn misskilning að ræða. Hérna er kveðið skýrar á um þetta og fer ekkert á milli mála. Gerð var úttekt á þeim skipum sem um var að ræða og með þessu fyrirkomulagi er tryggt að enginn sem hefur haft réttindi tapar þeim.