Sjúkraflug

Mánudaginn 13. nóvember 2000, kl. 15:31:42 (1602)

2000-11-13 15:31:42# 126. lþ. 23.1 fundur 108#B sjúkraflug# (óundirbúin fsp.), JB
[prenta uppsett í dálka] 23. fundur, 126. lþ.

[15:31]

Jón Bjarnason:

Herra forseti. Það er því miður ekki ég sem ber ábyrgð á þessu sjúkraflugi og ég treysti náttúrlega vilja og ábyrgð hæstv. ráðherra að hún kanni nú þegar hvernig er ástatt með aðra samninga um sjúkraflug í landinu. Mig varðar ekkert um það hvort þetta er einfalt, tvöfalt eða erfitt. Það er bara óviðunandi ef samningar eru ekki ljósir og leiðir ljósar sem tryggja öryggi íbúanna hvar sem þeir eru á landinu, herra forseti.