Frsm. meiri hluta heilbr.- og trn. (Jónína Bjartmarz):
Herra forseti. Í nál. minni hluta hv. heilbr.- og trn. segir, sem ein röksemdin fyrir því að hann er ekki samþykkur frv. eins og það er, að hækkunin á gjaldinu, þó þetta sé ekki há fjárhæð, samsvari um 15% þeirrar launahækkunar sem lægst launuðu félagsmenn ASÍ o.fl. eigi von á um næstu áramót.
Ég vil fá að leiðrétta þetta. Þetta kom fram hjá fulltrúa ASÍ á fundi nefndarinnar og talað var um 15% af mánaðarlaunum, á mánaðargrunni.