Ferill 18. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 18 — 18. mál.
Fyrirspurn
til viðskiptaráðherra um samkeppni olíufélaganna.
Frá Kristjáni Pálssyni.
1. Hvernig er háttað eftirliti samkeppnisyfirvalda með verðlagningu olíufélaganna á eldsneyti?
2. Hafa samkeppnisyfirvöld haft einhver afskipti af verðlagningu olíufélaganna á olíu og bensín á bifreiðar og skip?
3. Hvaða skýring er á því að verð á olíu og bensíni er nánast það sama hjá öllum olíufélögunum?