Ferill 36. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 36 — 36. mál.
Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um frestun á skattlagningu söluhagnaðar af hlutabréfum.
Frá Ögmundi Jónassyni.
1. Hvernig metur ráðherra fengna reynslu af breytingunni sem gerð var á skattalögum árið 1996 og heimilar frestun á skattlagningu söluhagnaðar hlutabréfa, einkum með tilliti til fjármagnsflutninga úr landi?
2. Hversu miklum skattgreiðslum hefur verið frestað þannig og hversu stór hluti þeirra er vegna kaupa á erlendum hlutabréfum?