Ferill 45. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 45  —  45. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um einangrunarstöð gæludýra í Hrísey.

Frá Þorgerði K. Gunnarsdóttur.



     1.      Hversu margir af höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum hafa nýtt sér þjónustu eingangrunarstöðvar gæludýra í Hrísey sl. fimm ár?
     2.      Hvert er hlutfall íbúa þessara svæða af þeim sem hafa nýtt sér þjónustu einangrunarstöðvarinnar sl. fimm ár?
     3.      Hyggst ráðherra koma fleiri slíkum einangrunarstöðvum á fót og ef svo er, hvar þá?